31.3.2008 | 09:39
Vestfirsk náttúruverndarsamtök stofnuð 5. apríl
Um þessar mundir hefur undirbúningshópur unnið að því að endurreisa virðuleg samtök sem störfuðu hér á árum áður á Vestfjörðum og heita vestfirsk náttúruverndarsamtök. Samtökin hafa verið óvirk í 20 ár eða um það bil.Endurlífgunin mun eiga sér stað í Hömrum á Ísafirði laugardaginn 5. apríl kl. 14.00. Á fundunum verða flutt áhugaverð erindi auk þess sem kosin verður ný stjórn og samþykktir fyrir samtökin. Á fundinum mun Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra flytja ávarp auk þeirra Árna Finnssonar formanns Náttúruverndarsamtaka Íslands og Ómars Ragnarssonar, fjölmiðlamanns, stjórnmálamanns, náttúruunnanda eða bara lífskúnstners.
Nú þegar hefur fjöldi fólks skráð sig í samtökin og hvet ég alla til að mæta á fundinn eða skrá sig í samtökin. Hægt er að setja sig í samband við undirritaða með tölvupósti á bryndis@isafjordur.is
Athugasemdir
Viltu skrá mig í samtökin, Bryndís? Sendi þér nauðsynlegar upplýsingar í tölvupósti. Ég vil endilega vera með.
Lára Hanna Einarsdóttir, 31.3.2008 kl. 09:58
Ég skrái þig Lára mín og læt þig fylgjast með.
Bryndís G Friðgeirsdóttir, 31.3.2008 kl. 10:29
Kærar þakkir.
Var að taka eftir því að netfangið þitt er vitlaust í færslunni - r í stað s í nafninu þínu!
Lára Hanna Einarsdóttir, 31.3.2008 kl. 10:32
Aha... þú ert búin að laga það!
Lára Hanna Einarsdóttir, 31.3.2008 kl. 10:32
Gott framtak! Gangi þér vel í undirbúningnum!
Bestu kveðjur vestur
Stefán Gíslason, 31.3.2008 kl. 15:53
Valgerður Halldórsdóttir, 1.4.2008 kl. 21:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.