Frábært hjá Þórunni Sveinbjarnar

Í fréttum útvarps í gær kom fram  að Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra væri á móti Bjallavirkjun. Kapphlaupið er orðið svo mikið að komast yfir þá virkjanakosti sem eru mögulegir í landinu að aftur og aftur vaknar fólk upp við þann vonda draum að framkvæmdir orkufyrirtækja eru komnar það langt á veg að ekki verði aftur snúið. Þess vegna er mikilvægt að staldra við og bíða eftir þeirri vinnu sem nú er í gangi varðandi rammaáætlun um virkjanakosti. Vinna hlutina í réttri röð.

Verkefnisstjórn rammaáætlunar um virkjanakosti er að störfum og þegar hún hefur kynnt tillögur að rammaáætlun og þær síðan samþykktar á Alþingi þá vita stjórnendur fyrirtækja í orkuframleiðslu nákvæmlega hvaða svæði eru frátekin og verði ekki raskað. Hingað til hefur ekki verið hugað að réttri forgangsröðun en nú hafa Íslendingar eignast umhverfisráðherra. Húrra fyrir Þórunni. 


mbl.is Segir Bjallavirkjun ekki koma til greina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þóra Kristín Ásgeirsdóttir

Já var ekkert smá ánægð með hana !

Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, 14.9.2008 kl. 02:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.